Heilbrigðis-og
félagsforvarnarverkefnið Hugsað um barn
Þar sem flest ungt fólk er að
eðlisfari áhugasamt um mannlegt eðli og siðgæði
og fært um að hugsa um það á frumlegan hátt, virðast unglingsárin
vera heppilegur tími til að mennta fyrir foreldrahlutverkið.
Verkefnið felst í því að
drengir og stúlkur fá ”Raunveruleiknibarnið” með
sér heim og fá reynslu af því að annast “ungabarn” allan
sólarhringinn í nokkra daga, tækifæri til að læra, gera mistök og leiðrétta
þau, án þess að það hafi áhrif á
raunverulegt ungabarn. Nemendurnir fá
fræðslu um skaðsemi áfengis og fíkniefna á meðgöngu. Í verkefninu er m.a. notað
fræðsluefni frá Lýðheilsustöð. Verkefnið er leið til að efla jafnréttisfræðslu.
Verkefnið hlaut fjórar tilnefningar
til foreldraverðlauna Heimilis og skóla, árið 2009. Rauði kross Íslands og
Brekkubæjarskóli á Akranesi hlutu tilnefningu fyrir þátttöku í verkefninu.
Einnig hlaut verkefnið tilnefningu árið 2005 og 2006. Verkefnið fékk viðurkenningu frá Hvíta
húsinu. (The White House). Verkefnið hefur verið starfrækt frá árinu 2004 í
samstarfi við skóla, foreldrafélög og einstök sveitarfélög og hafa yfir 2.000
grunnskólanemar af öllu landinu verið í „tímabundna foreldrahlutverkinu“.
Tveir
nemar í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri, þær Hrafnhildur Eyþórsdóttir
og Kristín B. Flygenring, fjölluðu um verkefnið ,,Hugsað um barn” í
lokaverkefni sínu til B.Sc. gráðu í hjúkrunarfræði. Tilgangurinn var að kanna reynslu unglinga og
foreldra þeirra af verkefninu.
”Margar rannsóknir hafa sýnt fram á góðan
árangur verkefnisins. Það virðist auðvelda unglingum að gera sér raunhæfar
hugmyndir varðandi foreldrahlutverkið. Foreldrar voru almennt ánægðir með
verkefnið, töldu það hafa góð áhrif á samskipi þeirra við unglingana og það
opnaði fyrir umræður um kynferðismál. Þegar að niðurstöður rannsóknar okkar eru
bornar saman við bandaríska rannsókn á viðhorfum unglinga til fóstureyðinga
kemur í ljós að íslensku unglingarnir virðast hafa jákvæðra viðhorf til þeirra”
Einnig vekja þær athygli á því að börn unglinga eru í aukinn hættu á
námserfiðleikum og eins er það í meiri áhættu að verða fyrir líkamlegu og
andlegu ofbeldi.
Nemendur við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík hafa einnig notað
verkefnið í lokaverkefnum sínum.
Kynning
- fyrirlestur
Verklag
við námskeiðið
Kostnaður
Um ÓB-ráðgjöf
Mikilvægt er að fólki bjóðist
undirbúningsfræðsla fyrir foreldrahlutverkið og fjölskyldulíf því „allir“
stefna að því að verða foreldrar og eignast sína eigin fjölskyldu. Starf
ÓB-ráðgjafar var styrkt af menntamálanefnd alþingis frá árinu 2002 - 2010. Þungamiðjan
í starfinu hefur verið að þróa leið til þess að undirbúnings-fræðsla fyrir
foreldrahlutverkið verði almenn og viðurkennd. Leiðin sem er notuð er hagkvæm
og námsefnið er byggt á rannsóknum og prófunum.
Aðlögun að foreldrahlutverki
Það er sérlega ánægjulegt
fyrir okkur hvað drengjum fjölgar frá ári til árs, sagði Margrét
Friðriksdóttir, skólameistari MK, um áfangann sem lauk nú í janúar.
Byrjað var að vinna að undirbúningi tveggja eininga áfanga um undirbúning
foreldrahlutverksins í samstarfi við MK, Ób-ráðgjöf og Heilsugæsluna árið 2007,
sama ár og skólinn fékk verðlaun frá Jafnréttisráði fyrir framlag sitt til
jafnréttismála. Fullbókað hefur verið í áfangann og færri hafa komist að en
vildu. Nú er hann orðinn einn af valáföngum skólans, í boði á hverri vorönn.
Um er að ræða bæði fyrirlestra og helgarverkefni (60 klukkustundir) sem felur í
sér að ala önn fyrir raunveruleikabarni. Frætt er um skaðsemi
tóbaks, áfengis og fíkniefna á meðgöngu í áfanganum. Nemendur gera sér grein
fyrir mikilvægi þess að undirbúa sig fyrir foreldrahlutverkið og að það að
annast ungabarn er afar krefjandi. Í áfanganum er þess krafist að nemandinn
sýni útsjónarsemi og úthald og geti skipulagt sig eins og hann væri að annast
raunverulegt barn. Mat sem lagt var fyrir nemendur í lokin sýnir að þeir eru
mjög ánægðir og áhugasöm um málefnið. Meðal annars kom eftirfarandi fram þegar
spurt var hvort áfanginn væri gagnlegur: Já, ég myndi mæla með þessu fyrir
alla.
Barnið
komið heim - Námskeið fyrir verðandi og nýorðna foreldra
Barnið komið heim námskeiðið er byggt á sálfræði- og
kennslufræðilegum rannsóknum og prófunum og er fyrir barnshafandi pör og
foreldra ungra barna.
Barnið komið heim námskeiðin hafa hlotið mikilla og
verðskuldaðra vinsælda. Yfir 200 pör hafa sótt námskeiðið síðan í nóvember
2008. Þessum vinsældum þökkum við starfsfólki mæðra- og ungbarnaverndar og
ánægðum þátttakendum. Stöðumat sem gert er eftir hvern tíma sýnir að
þátttakendur eru mjög ánægðir og telja gagnsemi námskeiðsins mikla. Námskeiðinu Barnið komið heim er ætlað að hjálpa væntanlegum foreldrum og
foreldrum ungabarna, með aukinni þekkingu, að öðlast nauðsynlega hæfileika til
að takast á við þær breytingar sem verða í sambandinu með tilkomu barns. Lögð
er áhersla á að efla vinatengsl og nánd í sambandinu, að stjórna ágreiningi ,
að vera samstillt í uppeldishlutverkinu, þekkja grundvallaratriði í þroska
barna og að vita hvert hægt er að leita eftir stuðningi og ráðgjöf þegar þörf
er á.
Þeir
sérfræðingar sem hafa kynnt sér námsefni „Barnið komið heim“ hérlendis telja
vísindalegan bakgrunn þess ótvíræðan. Jafnréttisráð er þeirrar skoðunar að með
námskeiðinu sé unnið að auknu jafnrétti, jafnari ábyrgð foreldra í millum og
aukinni gagnkvæmri virðingu beggja kynja. Slíkt stuðli jafnframt að farsæld
barnsins og fjölskyldunnar í heild. Úttekt Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar
bendir til þess að þátttakendur á námskeiðinu séu almennt ánægðir með
námskeiðið en þeir gáfu því meðaleinkunnina 4,4 af 5 mögulegum. Þátttakendur
eru bæði ánægðir með kennara námskeiðanna og efni. Þátttakendur eru einnig
beðnir að meta hvað þeir hafi tileinkað sér af fræðslu hvers dags, sem einnig
kemur nokkuð vel út. Sama niðurstaða kemur fram í lokaverkefni
félagsráðgjafanemanna Dagbjartar Rúnar Guðmundsdóttur og Daggar Guðnadóttur í
BA námi í félagsráðgjöf nú í vor. Námskeiðin eru haldin
reglulega. Nánari upplýsingar um
dagsetningar námskeiða má finna á www.barnidkomidheim.net